Náðu í appið
Snitch

Snitch (2013)

"How far would you go to save your son?"

1 klst 52 mín2013

John Matthews er vöruflutningabílstjóri, kvæntur og tveggja barna faðir.

Rotten Tomatoes57%
Metacritic51
Deila:
16 áraBönnuð innan 16 ára
Ástæða:OfbeldiOfbeldiVímuefniVímuefni

Söguþráður

John Matthews er vöruflutningabílstjóri, kvæntur og tveggja barna faðir. Dag einn flækist sonur hans, Jason, í eiturlyfjaviðskipti og er í kjölfarið handtekinn og hnepptur í gæsluvarðhald. Yfir honum vofir 10 ára fangelsisdómur sem gæti þó fengist mildaður aðstoði hann lögregluna við að hafa hendur í hári hinna raunverulegu eiturlyfjasala. En Jason er ekki mikill bógur í sér og myndi aldrei takast að blekkja harðsvíraða glæpamenn sem útsendari lögreglunnar. Hinn kosturinn, að sitja af sér dóminn, er reyndar lítið skárri og John veit að Jason myndi fara illa út úr slíkri fangavist. John ákveður því að bjóða sjálfan sig fram í stað sonar síns, freista þess að koma sér inn í innsta hring eiturlyfjasalanna og afla lögreglunni þeirra gagna og sannana sem hún þarf. En þetta er stórhættulegur leikur ...

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar

Framleiðendur

Exclusive MediaUS
ParticipantUS
Image Nation Abu DhabiAE
Front Street ProductionsUS
Spitfire PicturesUS
Summit EntertainmentUS

Gagnrýni