Náðu í appið
Machete Kills

Machete Kills (2013)

Machete 2

"Trained to Kill. Left to Kill. Back for More."

1 klst 47 mín2013

Það muna vafalaust margir eftir mynd Roberts Rodriguez, Machete, sem frumsýnd var í september 2010.

Rotten Tomatoes29%
Metacritic41
Deila:
16 áraBönnuð innan 16 ára
Ástæða:OfbeldiOfbeldiKynlífKynlífBlótsyrðiBlótsyrði

Hvar má horfa

Leiga
Stöð 2

Söguþráður

Það muna vafalaust margir eftir mynd Roberts Rodriguez, Machete, sem frumsýnd var í september 2010. Nú er þessi eitilharði mexíkóski lögreglumaður mættur til leiks á ný. Í þetta sinn er það enginn annar en forseti Bandaríkjanna sem leitar á náðir Machete. Komið hefur í ljós að snarklikkaður vopnasali hefur komist yfir öflug, langdræg flugskeyti og hyggst nota þau til að hefja styrjöld við alheiminn. Þennan mann (sem Mel Gibson leikur) verður að stöðva hvað sem það kostar áður en það er orðið of seint. Vandamálið er að það er nánast ómögulegt að nálgast brjálæðinginn, svo vel hefur hann girt sig af. En Machete kallar nú ekki allt ömmu sína þegar óbótamenn eru annars vegar og auðvitað kemur ekkert annað til greina en að leggja í ófétið ...

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar

Framleiðendur

Open Road FilmsUS
Overnight Films
AR Films
Aldamisa EntertainmentUS
Demarest FilmsUS
1821 PicturesUS