Deadfall (2012)
"Enginn veit sína ævina ..."
Systkinin Addison og Liza eru á flótta í köldum eyðibyggðum Kanada eftir rán í spilavíti þegar bíllinn sem þau eru í veltur og atburðarásin breytist.
Bönnuð innan 16 ára
Ofbeldi
BlótsyrðiSöguþráður
Systkinin Addison og Liza eru á flótta í köldum eyðibyggðum Kanada eftir rán í spilavíti þegar bíllinn sem þau eru í veltur og atburðarásin breytist. Það eru þau Eric Bana og Olivia Wilde sem leika systkinin Addison og Lizu. Eftir að bíllinn fer út af veginum og veltur bregður Addison á það hörmungarráð að skjóta fyrsta lögreglumanninn sem kemur á vettvang. Hann skilur síðan Lizu eftir á meðan hann fer eftir frekari aðstoð. Þar sem Liza er við það að frjósa í hel ber að fyrrverandi hnefaleikamanninn og tugthúsliminn Jay (Charlie Hunnam) sem er á leiðinni til foreldra sinna (Sissy Spacek og Kris Kristofferson) eftir að hafa framið voðaverk. Jay ákveður að bjarga Lizu, en það á eftir að reynast afdrifaríkt ...
Aðalleikarar
Höfundar og leikstjórar

Myndir
Bakgrunnsmyndir
Plaköt
Framleiðendur




















