Náðu í appið
A Most Wanted Man

A Most Wanted Man (2013)

"HVER ER AÐ SPILA MEÐ HVERN?"

2 klst 2 mín2013

Þegar hálf-tétsjénskur, hálf rússneskur, innflytjandi, sem er nær búið að pynta til dauða, birtist í íslamska samfélaginu í Hamborg í Þýskalandi, til að krefjast illa...

Rotten Tomatoes86%
Metacritic73
Deila:
A Most Wanted Man - Stikla
12 áraBönnuð innan 12 ára
Ástæða:OfbeldiOfbeldiVímuefniVímuefniBlótsyrðiBlótsyrði

Hvar má horfa

Leiga
Stöð 2Síminn

Söguþráður

Þegar hálf-tétsjénskur, hálf rússneskur, innflytjandi, sem er nær búið að pynta til dauða, birtist í íslamska samfélaginu í Hamborg í Þýskalandi, til að krefjast illa fengins auðs sem faðir hans sankaði að sér, þá fá þýska - og bandaríska leyniþjónustan sérstakan áhuga á málinu. Eftir því sem tíminn líður og áhættan eykst, þá keppast menn við að komast að því hver þessi maður er í raun og veru - er hann kúgað fórnarlamb, eða öfgamaður sem ætlar að fremja illvirki? Philip Seymour Hoffman leikur hér þýska leyniþjónustumanninn og gagnnjósnarann Gunther Bachmann sem rannsakar og reynir að koma upp um starfsemi hryðjuverkahópa í landinu. Þegar hann uppgötvar að téténskur flóttamaður að nafni Issa Karpov hefur komist ólöglega til Hamborgar uppgötvar hann um leið að faðir Issa var á sínum tíma grunaður um peningaþvætti í samstarfi við þýskan bankamann að nafni Tommy Brue og að hann hafi skilið eftir talsvert fé í landinu. Þessa vitneskju ákveður Gunther að nýta sér til að leggja gildru fyrir músliman dr. Abdullah sem Gunther telur að fjármagni hryðjuverkastarfsemi Al Qaeda. Sú áætlun á þó heldur betur eftir að fara úrskeiðis ...

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar

Gagnrýni notenda

Engar gagnrýnir ennþá. Vertu fyrstur til að skrifa gagnrýni!

Framleiðendur

Amusement Park FilmsDE
Demarest FilmsUS
FilmNation EntertainmentUS
Senator FilmDE
The Ink FactoryGB
Film4 ProductionsGB

Verðlaun

🏆

Samtök bandarískra gagnrýnenda útnefndu A Most Wanted Man eina af tíu bestu óháðu myndum síðasta árs.