Náðu í appið
The Penguins of Madagascar

The Penguins of Madagascar (2014)

Mörgæsirnar frá Madagascar

"The Movie Event that will Blow Their Cover."

1 klst 30 mín2014

Mörgæsirnar fjórar frá Madagascar sem segja má að hafi stolið senunni í Madagascar-teiknimyndunum skemmtilegu frá Dreamworks-kvikmyndarisanum mæta nú aftur á svæðið í sinni eigin bíómynd....

Rotten Tomatoes74%
Metacritic53
Deila:
Öllum leyfð Öllum leyfð

Hvar má horfa

Streymi
Prime Video
Leiga
Stöð 2Síminn

Söguþráður

Mörgæsirnar fjórar frá Madagascar sem segja má að hafi stolið senunni í Madagascar-teiknimyndunum skemmtilegu frá Dreamworks-kvikmyndarisanum mæta nú aftur á svæðið í sinni eigin bíómynd. Nú er sem sagt komið í ljós að þeir Skipper, Kowalski, Hermann og Rico eru engar venjulegar mörgæsir heldur þrautþjálfaðar leynimörgæsir sem hafa í raun bjargað heiminum frá tortímingu oftar en einu sinni og haft betur í baráttunni við marga af hættulegustu karakterum dýraríkisins. Nú bíður þeirra félaga enn eitt verkefnið en það felst í að stöðva hinn illa innrætta kolkrabba Oktavíus sem ætlar sér að leggja heiminn undir sig og jafnvel rústa honum alveg með gríðarlega öflugu vopni sem hann hefur fundið upp. Til að leysa málið fá mörgæsirnar óvænta aðstoð frá háleynisamtökunum Norðanvindi, en aðalmaðurinn þar, eða réttara sagt aðalhundurinn, er hinn tungulipri og stimamjúki Leyndarmál fulltrúi sem eins og mörgæsirnar er reyndur í baráttunni við alls kyns glæpagengi ...

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar

Simon J. Smith
Simon J. SmithLeikstjóri
John Aboud
John AboudHandritshöfundurf. -0001
Michael Colton
Michael ColtonHandritshöfundurf. -0001