Náðu í appið
Welcome to New York

Welcome to New York (2014)

"Veistu hver ég er?"

2 klst 5 mín2014

Kvikmynd um hneykslismál aldarinnar.

Rotten Tomatoes77%
Metacritic71
Deila:
Öllum leyfð Öllum leyfð

Söguþráður

Kvikmynd um hneykslismál aldarinnar. Frakkland stóð á öndinni yfir dramatísku syndafalli Dominique Strauss-Kahn, þegar hann var ákærður fyrir að áreita hótelþernu í New York kynferðislega. Franska þjóðin saug í sig fréttaflutning af málinu, reif í sig bókina sem skrifuð var um það og fylgdist með málaferlunum í kjölfarið. Nú, þremur árum eftir að atburðirnir áttu sér stað, gefst heimsbyggðinni tækifæri til að sjá kvikmyndina um málið. Gérard Depardieu leikur aðalhlutverkið í Welcome to New York, en nafni Strauss-Kahn hefur verið breytt í hr. Devereaux sem er afar valdamikill maður. Milljarðar dollara fara í gegnum hans hendur á hverjum einasta degi. Hann stýrir efnahagslegum örlögum heilu þjóðanna, en er knúinn áfram af óbeislaðri og villtri kynhvöt. Hr. Devereaux dreymir um að bjarga heiminum, en getur ekki einu sinni bjargað sjálfum sér og er gersamlega skelfingu lostinn. Depardieu hefur ekki farið í grafgötur með andúð sína á fyrrum framkvæmdastjóra Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, en segir kvikmyndina fyrst og fremst fjalla um völd, einmanaleika og hnignun.

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar

Framleiðendur

Belladonna ProductionsUS
Wild BunchFR
Forbes