Þessi mynd voru ansi mikil vonbrigði á sínum tíma. Þessi mynd skartar erlendum stórleikurum en allt kemur fyrir ekki, hundleiðinleg mynd. Gerist alveg sáralítið í þessari mynd, því er n...
Á köldum klaka (1995)
Cold Fever
Sagan segir frá Hirata, ungum starfsmanni fisksölufyrirtækis í Tókyó.
Öllum leyfðSöguþráður
Sagan segir frá Hirata, ungum starfsmanni fisksölufyrirtækis í Tókyó. Hann hefur náð góðum árangri í starfi og er á förum til Hawaii til að slaka á við golfiðkun í sól og hita þegar afi hans boðar hann á sinn fund. Afinn segir að Hirata verði að fara til Íslands til að fremja þar hefðbundna japanska minningarathöfn við á eina í óbyggðum þar sem foreldrar hans drukknuðu í bílslysi sjö árum áður. Samkvæmt gamalli japanskri trú leita sálir hinna látnu að þeim tíma liðnum, aftur til þess staðar þar sem þeir fórust og verði ekki réttir helgisiðir framkvæmdir finna þær aldrei frið. Hirata segist ekki trúa á þessi gömlu hindurvitni en fellst að lokum á að breyta ferðaáætlunum sínum og heldur til Íslands. Þar mæta honum meiri hremmingar og furður en hann gat látið sig dreyma um. Hann verður aldrei samur maður eftir ferðina til Íslands. En kannski fann sál hans frið.
Aðalleikarar
Höfundar og leikstjórar


Myndir
Plaköt
Framleiðendur













