Náðu í appið
Knock Knock

Knock Knock (2015)

"Some Doors should not be Opened"

1 klst 39 mín2015

Evans er vinsæll arkitekt sem lifir að því er virðist frábæru og fullkomnu lífi.

Rotten Tomatoes37%
Metacritic53
Deila:
16 áraBönnuð innan 16 ára
Ástæða:OfbeldiOfbeldiBlótsyrðiBlótsyrði

Hvar má horfa

Leiga
Stöð 2

Söguþráður

Evans er vinsæll arkitekt sem lifir að því er virðist frábæru og fullkomnu lífi. Hann á glæsilega eiginkonu, börn sem gengur vel í öllu sem þau taka sér fyrir hendur, og draumaheimili sem hann hannaði sjálfur. Vegna meiðsla getur hann ekki farið með fjölskyldunni á ströndina um helgina eins og búið var að plana. Þess í stað ætlar hann að vinna að verkefni heima, en taka því annars rólega. Sú áætlun á þó eftir að riðlast hressilega þegar vinkonurnar Genesis og Bel banka upp á hjá honum og biðja um aðstoð. Því getur Evan ekki neitað og veit auðvitað ekki að þar með er hann kominn í lífshættu. Þessar tvær fallegu ungu konur daðra við Evan og tæla hann, og hann lætur undan, þó hann standist þær í fyrstu. Daginn eftir er heimili hans í rúst, og fljótlega neyðist hann til að taka þátt í sadistískum leikjum sem Bel og Genesis hafa undirbúið fyrir elskhuga sinn og fórnarlamb.

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar

Framleiðendur

Sobras International PicturesCL
UFADE
Black Bear PicturesUS
Camp GreyUS
Elevated FilmsUS
Movie Trailer HouseUS