Men, Women and Children
2014
Fannst ekki á veitum á Íslandi
Þekkir þú þá sem þú þekkir?
119 MÍNEnska
33% Critics 38
/100 Internetið og öll hin þráðlausa tækni sem nú hefur að miklu leyti tekið yfir samskiptamáta fólks er viðfangsefni þessarar áleitnu myndar Jasons Reitman. Hér eru sagðar nokkrar aðskildar sögur sem renna síðan saman í eina heild, en þær fjalla á raunsannan hátt um hvernig hin nýja tækni hefur hreint og beint breytt því hvernig fólk kemur fram, hugsar... Lesa meira
Internetið og öll hin þráðlausa tækni sem nú hefur að miklu leyti tekið yfir samskiptamáta fólks er viðfangsefni þessarar áleitnu myndar Jasons Reitman. Hér eru sagðar nokkrar aðskildar sögur sem renna síðan saman í eina heild, en þær fjalla á raunsannan hátt um hvernig hin nýja tækni hefur hreint og beint breytt því hvernig fólk kemur fram, hugsar og talar hvert við annað. Þau Adam Sandler og Rosemarie DeWitt leika hjón í ástlausu hjónabandi sem hafa sökkt sér niður í samskiptasíður í stað þess að leysa málin sín á milli. Við kynnumst líka skóladrottningunni Hönnu sem auglýsir kynþokka sinn öllum stundum á netinu í von um að verða „uppgötvuð“ og fræg eins og Kardashian-systurnar. Hanna er hrifin af Chris sem er orðinn gjörsamlega háður klámsíðum og finnur ekki til neinnar kynferðislegrar löngunar nema fyrir framan skjáinn. Önnur ung stúlka er Allison sem eftir að hafa séð strákinn sem hún er hrifin af skrifa að honum fyndist hún of feit hefur orðið átröskun að bráð. Fimmta sagan er svo um móðurina Patriciu sem krefst þess m.a. af dóttur sinni að hún sýni sér reglulega öll samskipti sín á netinu og gerir sér enga grein fyrir hvaða afleiðingar afskiptasemi hennar hefur á dótturina. Hér er einnig sögð saga föður sem reynir af öllum mætti að ná sambandi við son sinn, en hann er orðinn tölvuleikjafíkill sem er orðinn sannfærður um að ekkert annað skipti máli en að vera í sambandi við þá sem þekkja til í hans veröld, enda eru þeir þeir einu sem eru með viti ...... minna