The Second Best Exotic Marigold Hotel
2015
Frumsýnd: 10. apríl 2015
122 MÍNEnska
66% Critics 51
/100 Það er bara eitt herbergi eftir laust á The Best Exotic Marigold Hotel og því ákveður hótelstjórinn, Sonny Kapoor, að opna annað hótel. Við tökum hér upp þráðinn þar sem frá var horfið í fyrri myndinni. Allt er orðið fullt á Marigold-hótelinu og bara eitt herbergi eftir. Það er hins vegar von á tveimur gestum í viðbót og því ákveður hinn yfirmáta... Lesa meira
Það er bara eitt herbergi eftir laust á The Best Exotic Marigold Hotel og því ákveður hótelstjórinn, Sonny Kapoor, að opna annað hótel. Við tökum hér upp þráðinn þar sem frá var horfið í fyrri myndinni. Allt er orðið fullt á Marigold-hótelinu og bara eitt herbergi eftir. Það er hins vegar von á tveimur gestum í viðbót og því ákveður hinn yfirmáta bjartsýni hótelstjóri Sonny Kapoor að opna bara nýtt hótel af sömu framkvæmdargleðinni og fékk hann til að opna það sem fyrir er þótt húsið væri langt frá því að vera tilbúið. Vel studdur af hinni álíka bjartsýnu Muriel (Maggie Smith) heldur Sonny ótrauður á vaðið til að afla þess fjár sem hann þarf. Þegar nýr gestur bætist við, hinn fjallmyndarlegi Guy (Richard Gere), fer samt óvænt atburðarás í gang og sem fyrr liggur rómantíkin í loftinu ...... minna