Nick and Norah´s Infinate Playlist stjarna handtekin tvisvar

gavronRafi Gavron, til vinstri á meðfylgjandi mynd, sem er best þekktur fyrir leik sinn í hlutverki Dev í myndinni Nick and Norah´s Infinate Playlist, var handtekinn tvisvar á 12 tíma millibili í Los Angeles þann 15. desember sl. Í fyrra skiptið var það fyrir ölvunarakstur og í seinna skiptið fyrir heimilisofbeldi.

Samkvæmt vefsíðunni TMZ þá var Gavron sakaður um að hafa slegið stúlku í andlit og maga, og síðan flúið af vettvangi í bifreið stúlkunnar.

Leikarinn, sem er 24 ára gamall, var síðan að lokum ákærður fyrir fjögur brot: heimilisofbeldi, að halda manneskju fanginni með ofbeldi, að koma í veg fyrir að vitni segði frá glæp, og bílaþjófnað.

 

Ákæra um ölvunarakstur er nú þegar fyrir rétti í Los Angeles.

Stikk: