Óskarstilnefnd mynd sýnd á Ísafirði

Opnunarmynd Pigeon International Film Festival (PIFF), sem haldin verður í annað
sinn á Ísafirði í haust, var tilnefnd sem besta erlenda myndin á Óskarsverðlaununum í
ár. Það er bútanska myndin Lunana: a Yak in The Classroom. Þetta kemur fram í tilkynningu frá hátíðinni.

Gaman í skólanum.

Þar segir að heimsathygli hafi vakið þegar myndin var tilnefnd til verðlaunanna eftirsóttu þar sem hún er fyrsta myndin frá Bútan til að öðlast þann heiður.

Þess má geta að sömuleiðis hefur aðeins ein mynd frá Íslandi verið tilnefnd til Óskarsverðlauna; Börn náttúrunnar eftir Friðrik Þór Friðriksson.

Konungsríkið Bútan er lítið land í sunnanverðri mið-Asíu við rætur Himalaya fjallgarðsins. Ríkið er staðsett mitt á milli Kína í norðri og Indlands í suðri.

Pawo Choyning Dorji leikstjóri.

Leikstjóri kvikmyndarinnar, Pawo Choyning Dorji verður gestur hátíðarinnar og mun sitja fyrir svörum að sýningu lokinni.

Fær erfitt starf

Myndin fjallar um kennara sem fær það erfiða starf að kenna krökkum í Lunana, litlum bæ hátt í fjöllunum í Bútan í Suður-Asíu.

Hún var tekin í litlu þorpi hátt í Himalaya-fjöllum án rafmagns eða annarra nútímaþæginda.

Í grein New York Times frá því í febrúar er haft eftir hinum heimsfræga leikstjóra Ang Lee að myndin sé sem ferskur andblær og sé dýrmæt, mjög einföld en afar hjartnæm mynd.

Myndin var tekin í litlu þorpi hátt í Himalaya-fjöllum án rafmagns eða annarra nútímaþæginda.

Myndin var framlag bútönsku ríkistjórnarinnar til Óskarsverðlaunanna árið 2021 en var dæmd úr leik vegna þess að svo langt var síðan að tillaga hafði komið frá Bútan að landið var ekki lengur á lista yfir þau lönd sem eru opinberlega viðurkennd af akademíunni.

Send inn aftur

Sérstök valnefnd var því mynduð fyrir Óskarsverðlaunin 2022 og var myndin aftur send inn sem framlag þjóðarinnar. Var hún í þetta sinn valin úr 93 framlögum víðsvegar úr heiminum sem tilnefnd var til Óskarsverðlauna í flokki alþjóðlegra kvikmynda í fullri lengd, ásamt fjórum öðrum myndum frá Japan, Danmörku, Ítalíu og Noregi. Það var svo japanska kvikmyndin Drive My Car sem hlaut verðlaunin.

Lunana: Yak in the Classroom verður sýnd í Ísafjarðarbíói kl. 18 fimmtudaginn 13. október að lokinni opnunarhátíð Piff. Hátíðin verður dagana 13.-16. október nk. en þetta er í annað sinn sem hátíðin er haldin. Sýndar verða myndir frá hátt í 30 löndum á hátíðinni.