Tarantino og Baltasar í nýjum Myndum mánaðarins!

Janúarhefti kvikmynda – og DVD/Blu-ray/VOD tímaritsins Myndir mánaðarins er komið út í rafrænni útgáfu. Eins og ávallt er blaðið sneisafullt af áhugaverðu efni í bland við kynningar á nýjustu myndum bíóhúsanna í janúarmánuði, sem og nýjum myndum sem gefnar verða út á DVD, Blu-ray og/eða VOD í mánuðinum.

mmmm

Á forsíðum blaðsins eru annarsvegar engin önnur en nýjasta mynd Quentin Tarantino, The Hateful Eight, sem kemur í bíó 6. janúar, og í vídeóhlutanum er það mynd Baltasars Kormáks, Everest, sem kemur út á DVD/VOD og Bluray þann 7. janúar.

Einnig má í blaðinu sjá það nýjasta á tölvuleikjamarkaðnum og margt fleira, eins og stjörnuspá, gullkorn, bíófréttir og bíómiðaleik.

Smelltu hér til að lesa Myndir mánaðarins á kvikmyndir.is