Thor bjargar málunum – ný klippa!

ThorÞað styttist óðum í frumsýningu á ofurhetjumyndinni sem tekin var á Íslandi að hluta, Thor: The Dark World. Í gær var frumsýndur glænýr bútur úr myndinni þar sem átök á milli herja Ásgarðs, heimilis guðanna, og hers illmennisins Malekith, Dark Elf hersins, standa yfir.

Í klippunni sjást Sif og Volstagg ( sem Jaimie Alexander og Ray Stevenson leika ) í fylkingarbrjósti hers Ásgarðs. Þau eiga undir högg að sækja þar til Thor kemur og bjargar málunum.

Sjáðu atriðið hér fyrir neðan:

Í þetta sinn þarf Þór að kljást við hinn forna, illa og valdagráðuga Malekith, en hann hefur heitið því að eyða veröld guðanna eins og hún leggur sig þannig að heimurinn verði aftur hluti af Svartálfaheimum þar sem myrkrið ríkir. Til að berjast við þessa ógn og vernda um leið Jane Foster sem Malekith hyggst ná á sitt vald neyðist Þór til að leita til Loka og biðja hann um aðstoð, en eins og flestir vita hefur Loki ekki reynst Þór mikill vinur hingað til.

Thor: The Dark World verður frumsýnd á Íslandi 31. október nk.