Chase og D´Angelo ræða nýja Vacation mynd

Undirbúningur nýju Vacation myndarinnar stendur nú sem hæst og nú segir Variety kvikmyndaritið frá því að Chevy Chase og Beverly D´Angelo séu í viðræðum um að leika á nýjan leik hjónin Clark og Ellen Griswold í myndinni, en þau léku hjónin í upprunalegu myndunum.

Ed Helms úr Hangover myndunum, mun leika son þeirra, Rusty Griswold.

Um handrit og leikstjórn myndarinnar munu þeir John Francis Daley og Jonathan M. Goldstein sjá um.

Þessi nýja mynd fjallar um Rusty Griswold og eiginkonu hans, sem leikin verður af Christina Applegate,  á ferðalagi með börnum sínum, þar sem auðvitað fer allt úrskeiðis sem getur farið úrskeiðis, eins og jafnan hjá Griswold fjölskyldunni.

Búist er við að Chase og D´Angelo komi fram í gestahlutverkum þegar Rusty ákveður að kíkja í heimsókn til foreldra sinna á ferðalaginu.

Um síðustu jól komu þau Chase og D´Angelo fram í hlutverkum Griswold hjónanna í auglýsingum fyrir fatamerkið Old Navy í sjónvarpi í Bandaríkjunum.

Daley og Goldstein stefna á að hefja tökur myndarinnar í sumar, en myndin verður frumraun þeirra sem leikstjóra. Þeir eiga að baki handrit fyrir Jim Carrey myndina The Incredible Burt Wonderstone og Cloudy With A Chance Of Meatballs 2, sem verður frumsýnd 25. október nk.

 

Stikk: