Hvolpasveit ofurvinsæl

Aðra vikuna í röð sitja hvuttarnir í Hvolpasveitinni – Ofurmyndinni á toppi íslenska bíóaðsóknarlistans. Djöfullegir kraftar hrollvekjunnar The Exorcist: Believer dugðu ekki einu sinni til að hrinda henni af toppinum.

Tekjur af sýningum Hvolpasveitarmyndarinnar nema nú samtals rúmlega 31 milljón króna frá frumsýningu.

Fimm þúsund og sjöhundruð manns sáu Hvolpasveitina um síðustu helgi en fjórtánhundruð lögðu leið sína í bíó til að horfa á andsetningarhrollinn.

Átök við gervigreind

Þriðja sæti listans er svo skipað vísindaskáldskapnum The Creator, þar sem menn og gervigreind takast á í framtíðinni.

Sjáðu aðsóknarlistann í heild sinni hér fyrir neðan: