Josh Brolin í Sin City 2

Um 8 ár eru síðan fyrsta Sin City kvikmyndin kom í kvikmyndahús en sú mynd sló heldur betur í gegn og því hafa ansi margir beðið spenntir eftir margumtöluðu framhaldi. Nú þykir nokkuð ljóst að aðdáendur fyrri myndarinnar geti farið að telja niður fram að frumsýningu næstu kvikmyndar, en Sin City: A Dame to Kill for, mun koma út í Bandaríkjunum í október á þessu ári.

Þá mun leikstjórinn Robert Rodriguez ekki þurfa að treysta á neina áhugaleikara þar sem ýmsir stórleikarar munu birtast í Sin City: A Dame to Kill for, s.s. Joseph Gordon-Levitt, Jessica Alba, Bruce Willis, Eva Green, Josh Brolin, Ray Liotta, Jeremy Piven og Mickey Rourke.

Hér að neðan má sjá ljósmynd sem Rodriguez birti á Twitter síðu sinni en þar má sjá Josh Brolin, eitilharðan, í hlutverki sínu sem Dwight McCarthy sem áður var leikinn af Clive Owen.