Fyrsta stiklan er komin fyrir myndina Kick-Ass 2 en í gær sögðum við frá því einmitt að Jim Carrey væri óþekkjanlegur í myndinni. Nú getur þú dæmt um það sjálf/ur með því að sjá hann í hlutverki sínu hér að neðan. Ath. að um er að ræða svokallaða rauðmerkta stiklu ( Red Band Trailer ) sem gæti innihaldið efni sem er ekki ætlað börnum og viðkvæmum:
Get More:
Movie Trailers, Movies Blog
Fyrri myndin þénaði 100 milljónir Bandaríkjadala á heimsvísu og naut mikilla vinsælda hér á Íslandi.
Auk Jim Carrey þá leika helstu hlutverk í myndinni þau Aaron Taylor-Johnson, Chloë Grace Moretz, Christopher Mintz-Plasse, Morris Chestnut, John Leguizamo og Donald Faison.
Leikstjóri er Jeff Wadlow.
Sjáðu nýja plakatið fyrir myndina hér að neðan:
Söguþáður myndarinnar er þessi: Eftir að hafa sýnt klikkað hugrekki sem sjálfskipaða ofurhetjan Kick – Ass, þá hrindir hann af stað nýrri bylgju sjálfskipaðra grímuklæddra ofurhetja. Þar er fremstur í flokki Stars and Stripes ofursti, og Kick-Ass gengur til liðs við þessar hetjur.
Þegar hetjurnar verða fyrir árás Red Mist, sem er nú endurfæddur sem The Mother F%&*^r, þá er það einungis hins hnífa- og sverðasveiflandi Hit Girl sem getur komið í veg fyrir algera útrýmingu þeirra.
Síðast sáum við unga launmorðingjann Hit Girl og hina ungu sjálfskipuðu ofurhetju Kick-Ass þegar þau voru að reyna að lifa sínu lífi sem venjulegir unglingar, Mindy og Dave. Nú er útskrift úr skóla á næsta leiti og óvíst hvað tekur við. Dave ákveður að stofna heimsins fyrsta ofurhetjuteymi ásamt Mindy. Til allrar óhamingju þá er Mindy gripin glóðvolg í Hit Girl búningnum sínum við það reyna að stelast út að kvöldi til, og hún leggur því búninginn á hilluna og neyðist til að takast á við lífið í skólanum eins og hver önnur venjulegt stúlka.
Nú hefur Dave engan til að vinna með, og ákveður því að slást í lið með Justice Forever, sem er hópur sem fyrrum mafíósinn Colonel Stars and Stripes stjórnar.
Þegar hópurinn er loksins farinn að láta til sín taka úti á götum borgarinnar þá mætir heimsins fyrsta ofur – illmennið, The Mother F%&*^r, á svæðið ásamt illvígu teymi sínu, en hann vill láta Kick-Ass og Hit Girl borga fyrir það sem þau gerðu föður hans. En það er eitt vandamál við þetta allt saman: þegar þú áreitir einn meðlim Justice Forever, þá ertu að áreita alla meðlimi hópsins.