Náðu í appið
Coco

Coco (2017)

"Velkomin í heim hinna dauðu"

1 klst 30 mín2017

Coco segir frá hinum músíkalska Miguel sem þráir að verða tónlistarmaður eins og Ernesto de la Cruz sem var álitinn stórkostlegasti gítarleikari og söngvari Mexíkó á sínum tíma.

Rotten Tomatoes97%
Metacritic81
Deila:
Öllum leyfð Öllum leyfð

Söguþráður

Coco segir frá hinum músíkalska Miguel sem þráir að verða tónlistarmaður eins og Ernesto de la Cruz sem var álitinn stórkostlegasti gítarleikari og söngvari Mexíkó á sínum tíma. Vandamálið er að fjölskylda Miguels lítur á tónlist sem bölvun á ættinni og bannar hana alfarið í sínum húsum. Ástæðan er sú að langalangafa Miguels hafði líka dreymt um að verða tónlistarmaður á sínum tíma. Dag einn yfirgaf hann fjölskylduna, hvarf sporlaust, og spurðist aldrei til hans framar. Síðan hefur enginn í ættinni viljað heyra neina tónlist og er meinilla við öll hljóðfæri, Miguel til mikillar mæðu. Dag einn rekast Miguel og besti vinur hans, hundurinn Dante, inn á dularfullan stað þar sem gamall og rykfallinn gítar hangir uppi á vegg. Miguel ákveður að prófa að spila á hann en um leið og hann slær fyrsta hljóminn er hann fyrir töfra fluttur inn í heim hinna dauðu þar sem hann á síðan eftir að hitta löngu liðna ættingja sem nú eru gangandi beinagrindur. Eftir að hafa jafnað sig á undruninni og óttanum ákveður Miguel að finna Ernesto og leysa í leiðinni gátuna miklu um hvað orðið hafi um langalangafa sinn ...

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar

Adrian Molina
Adrian MolinaLeikstjórif. -0001

Aðrar myndir

Framleiðendur

PixarUS

Verðlaun

🏆

Óskarsverðlaun sem besta teiknimynd.