Náðu í appið
Bönnuð innan 12 áraÍ myndinni er ljótt orðbragð

Another 48 Hrs. 1990

(Another 48 Hours)

Fannst ekki á veitum á Íslandi

The Boys Are Back In Town

93 MÍNEnska
Rotten tomatoes einkunn 19% Critics
The Movies database einkunn 23
/100

Síðastliðin fjögur ár hefur San Fransisco löggan Jack Cates verið á hælunum á óþekktum eiturlyfjabaróni sem kallar sig "Ice Man". Á Hunter´s Point kappakstursbrautinni lendir Jack upp á kant við Tyrone Burroughs og Arthur Brock. Jack drepur Brock í sjálfsvörn, en Burroughs sleppur, og Jack á á hættu að fara í fangelsi af því að byssa Brock er týnd.... Lesa meira

Síðastliðin fjögur ár hefur San Fransisco löggan Jack Cates verið á hælunum á óþekktum eiturlyfjabaróni sem kallar sig "Ice Man". Á Hunter´s Point kappakstursbrautinni lendir Jack upp á kant við Tyrone Burroughs og Arthur Brock. Jack drepur Brock í sjálfsvörn, en Burroughs sleppur, og Jack á á hættu að fara í fangelsi af því að byssa Brock er týnd. Jack finnur ljósmynd sem sannar að Ice Man hefur sett fé til höfuðs svikahrappnum Reggie Hammond, sem á að losna úr fangelsi daginn eftir. Jack reynir að sannfæra Reggie um að hjálpa sér að hreinsa nafn sitt og finna Ice Man, en Reggie vill ekki hjálpa nema Jack lofi að gefa honum peningana, 500 þúsund Bandaríkjadali, sem hann fær í verðlaun fyrir að finna sig. Jack neitar því, nema Reggie hjálpi honum. Eftir að rútan sem flytur Reggie úr fangelsinu er neydd út í árekstur af tveimur mótorhjólamönnum og Jack er skotinn af þessum sömu mótorhjólamönnum, þá neyðir Jack Reggie til að hjálpa sér með því að láta yfirvöld á sjúkrahúsinu afhenda sér hann í sína vörslu. Reggie þekkti annan mótorhjólamannanna sem Richard "Cherry" Ganz, bróður Albert Ganz, glæpamannsins sem Jack drap fjórum árum fyrr. Jack var skotinn af því að Cherry vildi hefna fyrir dauða Albert, og Cherry og félagi hans Willie Hickok eru leigumorðingjar sem hafa verið ráðnir til að drepa Reggie. Burroughs, sem vinnur fyrir Ice Man, var að reyna að ráða Brock til öryggis, ef ske kynni að Cherry og Hickok myndi mistakast. Blake Wilson, yfirmaður innra eftirlitsins, er greinilega ekki hrifinn af Jack, fyrst að hann vill gera allt til að koma honum á bakvið lás og slá fyrir að hafa drepið Brock, og síðan kemur í ljós að Ice Man setti fé til höfuðs Reggie, af því að Reggie veit hver Ice Man er, en hann reynist vera maður sem Jack grunaði aldrei hver væri.... minna

Aðalleikarar

Ekkert síðri en fyrri myndin
Another 48 Hours gerist sjö árum eftir atburði fyrri myndarinnar og nú á löggan Jack Cates(Nick Nolte) yfir höfði sér starfssviptingu og fangelsisvist fyrir manndráp í sjálfsvörn en byssa árásarmannsins fannst ekki. Jack endurvekur kynni sín við Reggie Hammond(Eddie Murphy) sem er nýsloppinn úr fangelsi og saman reyna þeir að finna alræmdan dópsala sem hefur eitthvað að gera með vandamál Jack's en það reynist hægara sagt en gert. Another 48 Hours stendur fyrri myndinni ekkert að baki og býður upp á meira af því sama. Þessi er þó ögn alvarlegri og húmorinn er kannski aðeins svartari. Þegar Walter Hill gerði þessa mynd árið 1990 hafði hann engu gleymt og Eddie Murphy og Nick Nolte ennþá frábærir saman. Handritið kannski ekkert algott en þetta er prýðileg grínspennumynd sem er vel þess virði að sjá. Og sjá svo aftur.
Fannst þér gagnrýnin hjálpleg? Nei
Skrifa gagnrýni
Senda inn

Svipaðar myndir



Skrifa söguþráð
Fyrirsögn
Takk fyrir aðstoðina, þú ert stjarna.
Senda inn