Náðu í appið
Young and Innocent

Young and Innocent (1937)

"A romantic murder-mystery drama!"

1 klst 20 mín1937

Eftir ofbeldisfullt rifrildi við eiginmann sinn, finnur Robert Tisdall fyrrum unnustu sína, fræga kvikmyndastjörnu, drukknaða á ströndinni.

Rotten Tomatoes100%
Metacritic77
Deila:
12 áraBönnuð innan 12 ára

Söguþráður

Eftir ofbeldisfullt rifrildi við eiginmann sinn, finnur Robert Tisdall fyrrum unnustu sína, fræga kvikmyndastjörnu, drukknaða á ströndinni. Lögreglan mætir á staðinn og handtekur Tisdall eftir að hafa hlustað á vitni sem segist hafa séð hann hjá líkinu. Hann er sakaður um morð. Þegar hann er um það bil að fara fyrir rétt, þá sleppur hann úr dómhúsinu með hjálp Erica Burgoyne, hinni úrræðagóðu dóttur lögreglustjórans. Í fyrstu þá trúir Erica því ekki í raun og veru að Tisdall sé saklaus, en hún laðast svo að unga manninum að hún heldur áfram að hjálpa honum, þó það setji líf hennar og feril föður hennar í hættu. Þar sem þau reyna að komast að því hver raunverulegi morðinginn er, þá fá þau ábendingu frá Old Will, sem getur borið kennsl á morðingjann, mann sem er með áberandi kippi í augunum.

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar

Charles Bennett
Charles BennettHandritshöfundurf. 1889
Josephine Tey
Josephine TeyHandritshöfundur

Framleiðendur

Gaumont-British Picture CorporationGB