Náðu í appið
Stage Fright

Stage Fright (1950)

"Every time I'm beginning to think what color your eyes are, you disappear!"

1 klst 50 mín1950

Eve Gil, ung og upprennandi leikkona, skýtur skjólshúsi yfir vin sinn sem er með henni í leiklistarskóla, Jonathan Cooper, en lögreglan leitar að honum þar...

Rotten Tomatoes92%
Metacritic62
Deila:
12 áraBönnuð innan 12 ára
Ástæða:HræðslaHræðsla

Hvar má horfa

Söguþráður

Eve Gil, ung og upprennandi leikkona, skýtur skjólshúsi yfir vin sinn sem er með henni í leiklistarskóla, Jonathan Cooper, en lögreglan leitar að honum þar sem hann er grunaður um morð á eiginmanni hjákonu sinnar, Charlotte Inwood, sem er frægur söngvari. Jonathan segir að hann hafi flækst í málið þegar hann var að hjálpa Charlotte að eyða sönnunargögnum. Sérlundaður faðir Eve, Commodore Gill, samþykkir að fela Jonathan heima hjá sér á meðan hún sannar sakleysi hans. Til að gera það, þá ræður Eve sig sem ráðskonu hjá Charlotte, tímabundið. Faðir Eve setur upp áætlun um að láta Charlotte játa morðið fyrir rannsóknarlögreglumanninum sem er með málið, Wilfred Smith. Þegar sú áætlun gengur ekki upp, þá reynir Eve að beita Charlotte fjárkúgun, á meðan lögreglan er að hlusta fyrir utan búningsherbergi hennar. Charlotte ákveður að borga, en segir að Jonathan sé hinn raunverulegi morðingi.

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar

Alma Reville
Alma RevilleHandritshöfundurf. 1897
Whitfield Cook
Whitfield CookHandritshöfundur

Framleiðendur

Warner Bros. PicturesUS
Transatlantic PicturesUS