Aðalleikarar
Leikstjórn
Handrit
Ég bý i Bandaríkjunum og sá þessa mynd fyrir nokkrum mánuðum. Hún kom mér mjög mikið á óvart. Myndin segir mjög skemmtilega sögu og Drew Barrymore er frábær í hlutverki sínu. Þetta er öðruvísi hlutverk en hún hefur leikið til þessa og mjög áhugavert. Alls ekki láta skoðun ykkar á Drew stoppa ykkur í að sjá myndina.
Ég bæði skellihló og hágrét þegar ég sá þessa mynd, og hún snerti mig svo mikið að ég fór að sjá hana aftur.
Það kemur mér mjög mikið á óvart að myndin hefur ekki verið sýnd á Íslandi og ég vona að hún komi bráðum í kvikmyndahús.
Ég fór á þessa mynd þegar ég var í USA. Ég var búin að sjá úr henni og hélt ég væri að fara á gamanmynd en hún kom mér skemmtilega á óvart...ég grét,hló og skemmti mér æðislega...Þessi mynd spilar á hverja einustu tilfinningu sem maður á til í sér....Ég bara spyr, hvenær kemur hún til Íslands??? hvenær get ég sýnt öllum hér hvað þetta er æðisleg mynd????? Halló kvikmyndahús!!