Náðu í appið
Wyatt Earp

Wyatt Earp (1994)

"The epic story of love and adventure in a lawless land."

3 klst 11 mín1994

Myndin fjallar um bandaríska lögreglustjórann sögufræga Wyatt Earp sem var uppi frá árinu 1848 til 1929.

Rotten Tomatoes31%
Metacritic47
Deila:
Wyatt Earp - Stikla
12 áraBönnuð innan 12 ára
Ástæða:OfbeldiOfbeldi

Söguþráður

Myndin fjallar um bandaríska lögreglustjórann sögufræga Wyatt Earp sem var uppi frá árinu 1848 til 1929. Earp ólst upp á bóndabæ í Iowa. Hann reynir að strjúka að heiman til að berjast með sambandshernum í borgarastríðinu, en fær ekki inngöngu vegna aldurs. Í staðinn lærir hann lögfræði og giftist Urilla Sutherland. Urilla deyr úr taugaveiki áður en þau ná að eignast börn saman. Earp verður æ niðurdregnari og sekkur ofaní drykkjuskap og smáþjófnað, en faðir hans Nicholas finnur hann, og nær að koma honum á rétta kjöl aftur. Earp gerist vísundaveiðimaður og náinn samstarfsmaður Bat Masterson og bróður hans Ed. Með bræðrum sínum Virgil og Morgan, þá ákveður Earp að ráðast í að uppræta ofbeldi sem grasserað hefur í gamla villta vestrinu. Earp tekur saman við Mattie Blaylock, eiturlyfjasjúkling og vændiskonu og skiptir henni svo út fyrir leikkonuna Josie Marcus. Í Tombstone í Arizona, þá hittir hann og bræður hans, ásamt félaga þeirra Doc Holliday, sem stríðir við berkla og spilafíkn, harðsnúið og miskunnarlaust ofbeldisgengi, undir forystu Ike Clanton.

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar

Gagnrýni notenda (1)

Hér er ein önnur mynd um Wyatt Earp en er þetta bara bísna góð mynd og er frammistaða Kevin Costners bara frekar góð. (Ég skil ekki hvað Razzie verðlaunanefndin er alltaf að bögga hann)...

Framleiðendur

Paragon Entertainment Corp.
Tig ProductionsUS
Kasdan PicturesUS
Warner Bros. PicturesUS

Verðlaun

🏆

Tilnefnd til Óskarsverðlauna fyrir kvikmyndatöku. Tilnefnd til 5 Razzie Awards, og Kevin Costner vann þau m.a. fyrir versta leik.