Náðu í appið
The Express

The Express (2008)

"He changed our country... one yard at a time"

2 klst 10 mín2008

The Express er áhrifarík mynd byggð á sannri sögu ruðningsleikmannsins Ernie Davis (Rob Brown), sem öðlaðist mikla frægð í kringum 1960.

Rotten Tomatoes63%
Metacritic58
Deila:
Öllum leyfð Öllum leyfð

Söguþráður

The Express er áhrifarík mynd byggð á sannri sögu ruðningsleikmannsins Ernie Davis (Rob Brown), sem öðlaðist mikla frægð í kringum 1960. Myndin hefst á uppvaxtarárum Ernie í Uniontown í Pennsylvaniu seint á fimmta áratugnum. Þar sem hann er þeldökkur upplifir hann mikla fordóma og kynþáttahatur í sinn garð. Ernie nær að nota líkamlegan styrk sinn til að forðast átök og eftir því sem hann vex úr grasi koma í ljós miklir íþróttahæfileikar hans, sérstaklega þegar hann gengur til liðs við unglingalið í bænum Elmira í New York-fylki. Hann fær boð um skólastyrk í hinum virta Syracuse-háskóla fyrir tilstilli þjálfarans Ben Schwartzwalder (Dennis Quaid) og virðist þá eins og hann muni uppfylla alla sína drauma. Hins vegar mætir hann gríðarlegum fordómum þegar hann hefur göngu sína með liðinu og er meira að segja haldið utan liðsins nánast heilt tímabil. Því þarf Ernie að leggja allt í sölurnar til að sanna sig, en það gæti kostað meira en hann óskar sér...

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar

Framleiðendur

Davis EntertainmentUS
Relativity MediaUS
IDEA Filmproduktions
Universal PicturesUS