Náðu í appið
Death Race 2

Death Race 2 (2011)

Death Race: Frankenstein Lives

"3 Days. 10 Killers, 20,000 Rounds of Ammo."

1 klst 36 mín2011

Flóttabílstjórinn Carl „Luke“ Lucas (Luke Goss) er handtekinn eftir misheppnaða ránstilraun í banka einum.

Rotten Tomatoes17%
Deila:
16 áraBönnuð innan 16 ára
Ástæða:OfbeldiOfbeldiBlótsyrðiBlótsyrði

Hvar má horfa

Söguþráður

Flóttabílstjórinn Carl „Luke“ Lucas (Luke Goss) er handtekinn eftir misheppnaða ránstilraun í banka einum. Allir nema einn samverkamenn hans sleppa lifandi, sem og yfirmaðurinn, glæpaforinginn Markus Kane (Sean Bean). Goss er fluttur í Terminal Island-fangelsið, en það er undir stjórn Weyland-samsteypunnar, og það fyrirtæki aflar sinna tekna fyrir fangelsið með óvenjulegum hætti. Sjónvarpað er frá reglulegum bardögum sem nefnast Death Match, en þar mætast tveir hættulegir fangar í hvert sinn, sem berjast upp á líf og dauða. Luke fer brátt að vekja athygli fyrir slagsmálahörku sína og er brátt tilnefndur í næsta bardaga, sem hann getur ekki sloppið undan, en til þess að lifa af þarf hann alla aðstoð félaga sinna í fangelsinu, hins veikburða en snjalla Lists (Frederick Koehler), og hinna grjóthörðu Goldberg (Danny Trejo) og Rocco (Joe Vaz).

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar

Framleiðendur

Moonlighting FilmsZA
CC Capital Arts Entertainment SRL