Rétt sleppur
Dream House er ágætis skemmtun ef það er ekkert annað í boði, þá ef þú ert búinn að sjá allt í bíó sem þú vilt sjá og ef þú ert kominn með leið á safninu og videóleiguni þá...
"Once upon a time, there were two little girls who lived in a house."
Hjón með tvö börn komast að því að eitthvað er á seyði í umhverfi þeirra, eitthvað sem mannleg þekking fær ekki útskýrt.
Bönnuð innan 12 áraHjón með tvö börn komast að því að eitthvað er á seyði í umhverfi þeirra, eitthvað sem mannleg þekking fær ekki útskýrt. Will Atenton er útgefandi sem hefur gengið allt í haginn á undanförnum árum. Hann ákveður að nú sé kominn tími til að sinna fjölskyldu sinni meira en hann hefur gert, hættir í núverandi starfi og flyst með eiginkonunni og tveimur dætrum þeirra í úthverfi þar sem hann ætlar sér að skrifa sína eigin skáldsögu. Fljótlega eftir flutningana verður fjölskyldan vör við að einhver er stöðugt að fylgjast með húsinu fyrir utan gluggann hjá þeim. Þegar Will fer að rannsaka málið kemst hann að því að fimm árum áður hafði hafði maður einn, Peter Ward, myrt eiginkonu sína og tvær dætur í þessu sama húsi, en ekki verið sakfelldur vegna geðveiki. Nú hefur Peter hins vegar verið látinn laus af geðsjúkrahúsinu. Will ákveður að leita til lögreglunnar til að fá upplýsingar en er fálega tekið. Hann talar því við nágranna sinn, hina fráskildu Ann Patterson, en þar rekst hann enn á ný á veggi því Ann vill greinilega ekki segja honum allt sem hún veit. Undrandi á þessum viðbrögðum bæði lögreglunnar og nágranna síns ákveður Will að tala við lækni á geðsjúkrahúsinu þar sem Peter hafði dvalið en kemst þá að óhugnanlegri staðreynd sem setur málið í nýtt samhengi ...



Dream House er ágætis skemmtun ef það er ekkert annað í boði, þá ef þú ert búinn að sjá allt í bíó sem þú vilt sjá og ef þú ert kominn með leið á safninu og videóleiguni þá...