Machine Gun Preacher (2011)
"Hope is the Greatest Weapon of All"
Sagan af Sam Childers, dópsala og vélhjólaharðjaxli, sem ákveður að breyta lífi sínu og hefja baráttu fyrir málstað hundruða munaðarlausra súdanskra barna sem hafa verið...
Bönnuð innan 16 ára
Ofbeldi
Kynlíf
BlótsyrðiSöguþráður
Sagan af Sam Childers, dópsala og vélhjólaharðjaxli, sem ákveður að breyta lífi sínu og hefja baráttu fyrir málstað hundruða munaðarlausra súdanskra barna sem hafa verið neydd til herþjónustu eða hneppt í þrældóm. Við komuna til Súdan ofbýður honum sá hryllingur sem blasir við honum, sérstaklega hlutskipti barna. Gegn aðvörunum reyndara fólks reisir hann munaðarleysingjahæli mitt á svæði Andspyrnuhreyfingar drottins (Lord’s Resistance Army), grimmra skæruliða sem neyða börn í hermennsku. En honum dugir ekki að bjarga börnunum á þessu svæði heldur fer hann í vopnaða leiðangra til að leita að fleiri börnum sem hafa verið rænt bernsku sinni. Myndin er byggð á æviminningum Childers, Another Man’s War.
Aðalleikarar
Höfundar og leikstjórar


Myndir
Bakgrunnsmyndir
Plaköt
Framleiðendur

Verðlaun
Tónlistarmaðurinn Chris Cornell samdi lagið The Keeper sérstaklega fyrir þessa mynd, en það var tilnefnt til Golden Globe-verðlauna sem besta kvikmyndalag ársins 2011.























