Wrath of the Titans
2012
(Clash of the Titans 2)
Fannst ekki á veitum á Íslandi
Frumsýnd: 30. mars 2012
Feel the Wrath
99 MÍNEnska
27% Critics 37
/100 Wrath of the Titans gerist um tíu árum eftir atburði fyrri myndarinnar. Perseus, hinn mannlegi sonur Seifs sem sigraði hinn illa Kraken, hefur reynt sitt besta til að draga sig í hlé og lifir nú rólegu lífi í litlu sjávarþorpi þar sem hann stundar fiskveiðar og elur upp 10 ára gamlan son sinn. Á meðan hefur ólgan á milli guðanna og risanna farið vaxandi... Lesa meira
Wrath of the Titans gerist um tíu árum eftir atburði fyrri myndarinnar. Perseus, hinn mannlegi sonur Seifs sem sigraði hinn illa Kraken, hefur reynt sitt besta til að draga sig í hlé og lifir nú rólegu lífi í litlu sjávarþorpi þar sem hann stundar fiskveiðar og elur upp 10 ára gamlan son sinn. Á meðan hefur ólgan á milli guðanna og risanna farið vaxandi á ný og Krónos, foringi risanna og faðir þeirra Seifs, Hadesar og Póseidons, látið til sín taka eftir að hafa haldið sig í myrkum undirdjúpum Tartarus síðan synir hans steyptu honum úr hásætinu. Þegar Hades ásamt mannlegum syni Seifs, Ares, ákveða að snúa bökum saman, svíkja Seif og vinna að því að koma honum í ánauð hjá Krónosi, getur Perseus ekki lengur setið hjá afskiptalaus. En kraftur Seifs fer óðum þverrandi og svo fer að Krónos nær honum á sitt vald. Perseus leitar þá til hins fallna guðs Hephaestusar, sonar Póseidons, Argenors, og stríðsdrottningarinnar Andrómedu, um hjálp til að fara niður til Tartarus, bjarga föður sínum úr klóm Krónosar og freista þess að binda enda á djöfullegt ráðabrugg hans og þeirra sem fylgja honum að málum ...... minna