Náðu í appið
Bönnuð innan 16 áraMyndin vísar til eða sýnir notkun vímuefnaÍ myndinni er ljótt orðbragð

Savages 2012

Fannst ekki á veitum á Íslandi

Frumsýnd: 28. september 2012

Allt fyrir ágóðann

131 MÍNEnska
Rotten tomatoes einkunn 50% Critics
The Movies database einkunn 59
/100

Hér segir frá félögunum Ben og Chon sem hefur tekist að rækta plöntur sem gefa af sér besta marijúana sem völ er á. Vegna þess er framleiðsla þeirra eftirsótt, bæði af neytendum og þeim sem selja marijúana í lækningaskyni. Á þessu hafa þeir félagar grætt mikla peninga og ekkert lát virðist ætla að verða á innkomunni. Velgengni þeirra Bens og... Lesa meira

Hér segir frá félögunum Ben og Chon sem hefur tekist að rækta plöntur sem gefa af sér besta marijúana sem völ er á. Vegna þess er framleiðsla þeirra eftirsótt, bæði af neytendum og þeim sem selja marijúana í lækningaskyni. Á þessu hafa þeir félagar grætt mikla peninga og ekkert lát virðist ætla að verða á innkomunni. Velgengni þeirra Bens og Chons hefur að sjálfsögðu náð eyrum annarra sem eru í sama bransa, þar á meðal eiturlyfjabarónessunnar Elenu sem vill ólm semja við tvímenningana og fá hlut í ágóðanum. En Ben og Chon hafa nákvæmlega engan áhuga á samningum og samstarfi við Elenu og eru óhræddir við að senda útsendara hennar til baka með skottið á milli fótanna. Við það getur Elena hins vegar ekki sætt sig og ákveður að grípa til annarra og talsvert róttækari aðgerða til að þvinga félagana að sínum vilja ...... minna


Skrifa söguþráð
Fyrirsögn
Takk fyrir aðstoðina, þú ert stjarna.
Senda inn