Náðu í appið
Hansel and Gretel: Witch Hunters

Hansel and Gretel: Witch Hunters (2013)

"Classic Tale, New Twist"

1 klst 28 mín2013

Það þekkja allir söguna af þeim Hans og Grétu sem sneru á illu nornina og komu henni fyrir kattarnef.

Rotten Tomatoes17%
Metacritic23
Deila:
16 áraBönnuð innan 16 ára
Ástæða:OfbeldiOfbeldiBlótsyrðiBlótsyrði

Söguþráður

Það þekkja allir söguna af þeim Hans og Grétu sem sneru á illu nornina og komu henni fyrir kattarnef. Síðan þá hafa þau gert það að ævistarfi sínu að elta uppi nornir og kála þeim. Eftir að systkinin Hans og Gréta voru skilin eftir í skóginum á sínum tíma römbuðu þau á hús eitt sem reyndist í eigu illrar nornar. Hún lokaði krakkana inni í búri og ef ekki hefði komið til snjallræði Hans og snögg viðbrögð Grétu hefði vart þurft að spyrja að leikslokum. Eftir þessa lífsreynslu uxu þau Hans og Gréta úr grasi reynslunni ríkari og ásettu sér að héðan í frá skyldu þau berjast gegn nornum og kála þeim hvar sem þær væri að finna svo þær gætu ekki lengur framið illvirki eins og að ræna fleiri börnum og éta þau. Hingað til hafa þau systkinin náð góðum árangri í nornaherferð sinni enda vel vopnum búin. Dag einn heyra þau af litlu þorpi sem hefur verið umsetið af norn eða nornum sem numið hafa fimm krakka á brott. Þau ákveða þegar að grípa til sinna ráða en komast þá að því að hér er ekki allt sem sýnist ...

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar

Framleiðendur

Paramount PicturesUS
MTV FilmsUS
Gary Sanchez ProductionsUS
Studio BabelsbergDE
Metro-Goldwyn-MayerUS