Náðu í appið
The Hobbit: The Desolation of Smaug

The Hobbit: The Desolation of Smaug (2013)

The Hobbit: Part 2

"Beyond darkness... beyond desolation... lies the greatest danger of all."

2 klst 41 mín2013

Fyrsti hluti ævintýrsins, An Unexpected Journey sagði frá upphafi hins óvænta ferðalags Bilbós með Gandálfi galdrakarli og dvergunum þrettán sem ætla sér að vinna á...

Rotten Tomatoes74%
Metacritic66
Deila:
The Hobbit: The Desolation of Smaug - Stikla
12 áraBönnuð innan 12 ára
Ástæða:HræðslaHræðsla

Söguþráður

Fyrsti hluti ævintýrsins, An Unexpected Journey sagði frá upphafi hins óvænta ferðalags Bilbós með Gandálfi galdrakarli og dvergunum þrettán sem ætla sér að vinna á ný hið horfna konungsdæmi sitt, Erebor í Einmanafjöllum. Til að svo megi verða þarf sigur að vinnast á hinum ógurlega dreka Smaug sem hefur hreiðrað um sig á gullinu sem hann komst yfir fyrir 60 árum. Eftir að hafa lifað af ferðalagið í gegnum Þokufjöll heldur hópurinn áfram í austur þar sem hann kemst í kynni við marga nýja óvini, þar á meðal hina hættulegu skógarálfa og grimmar risakóngulær í Myrkraskógi. Hamskiptingurinn Beorn kemur mikið við sögu og Bilbó Baggins finnur hringinn sem Gollum hafði týnt. Dvergarnir leita eftir stuðningi álfanna sem leiddir eru af álfakónginum Thranduil og Legolas syni hans sem Orlando Bloom leikur hér á ný. Hópurinn kemst síðan til Vatnabæjar og að lokum alla leið að Einmanafjalli þar sem þeirra bíður barátta við hinn illa og eldspúandi dreka, Smaug. Þar þarf Bilbó að uppfylla það stórhættulega verkefni sitt að finna leynihurðina sem varðar leiðina inn í fyrrverandi ríki dverganna ...

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar

Gagnrýni notenda

Engar gagnrýnir ennþá. Vertu fyrstur til að skrifa gagnrýni!

Framleiðendur

New Line CinemaUS
Metro-Goldwyn-MayerUS
WingNut FilmsNZ