We're the Millers (2013)
"-If anyone asks."
David Burke hefur í sig og á með marijúanasölu.
Bönnuð innan 12 ára
Ofbeldi
Kynlíf
Vímuefni
BlótsyrðiSöguþráður
David Burke hefur í sig og á með marijúanasölu. Dag einn býður léttgeggjaður eiturlyfjakóngur honum að skreppa fyrir sig til Mexíkó og ná þar í dálítinn farm af marijúana gegn 100 þúsund dollara greiðslu. Í fyrstu líst David ekkert á þetta en neyðist til að samþykkja dílinn þar sem hann er á milli steins og sleggju gagnvart kónginum. Í því skyni að villa um fyrir landamæravörðum bregður David á það ráð að fá nágrannakonu sína Rose til að þykjast vera eiginkona hans í ferðinni, en Rose er nektardansmær að mennt og ákveður eftir efablandna umhugsun að slá til. Til að fullkomna „fjölskylduna“ fær David síðan hinn grunnhyggna Kenny til að leika soninn og hina uppreisnargjörnu strokustúlku Casey í hlutverk dótturinnar. Og nú er bara að sjá hvernig þessari sérkennilegu fjölskyldu gengur að klóra sig í gegnum verkefnið ...
Aðalleikarar
Höfundar og leikstjórar


Aðrar myndir
Aðrar myndir
Myndir
Bakgrunnsmyndir
Plaköt
Framleiðendur




























