The Captive (2014)
"When hope is all you have."
Átta árum eftir að Cassandra hvarf sporlaust fara foreldrum hennar og lögreglunni að berast vísbendingar um að hún sé enn á lífi og jafnvel ekki langt undan.
Bönnuð innan 12 ára
Ofbeldi
BlótsyrðiSöguþráður
Átta árum eftir að Cassandra hvarf sporlaust fara foreldrum hennar og lögreglunni að berast vísbendingar um að hún sé enn á lífi og jafnvel ekki langt undan. Dag einn kemur Matthew (Ryan Reynolds) við í verslun á leiðinni heim eftir að hafa sótt dóttur sína Cassöndru í skólann. Hún bíður í bílnum, eins og oft áður, en þegar Matthew snýr til baka er hún horfin sporlaust. Í fyrstu grunar lögregluna að Matthew sé sjálfur valdur að hvarfi hennar og þótt eiginkona hans trúi því ekki kennir hún honum samt um hvarfið. Átta árum síðar byrja dularfullar vísbendingar að berast um að Cassandra sé enn á lífi og í framhaldinu tekur málið vægast sagt óvænta stefnu ...
Aðalleikarar
Höfundar og leikstjórar


Myndir
Bakgrunnsmyndir
Plaköt
Framleiðendur


Verðlaun
Atom Egoyan var tilnefndur til Gullpálmans í Cannes fyrir leikstjórn The Captive.



















