Óskarsverðlaunahafinn og handritshöfundurinn William Goldman er látinn. Hann lést í dag, 16. nóvember, á heimili sínu í New York, 87 ára gamall.
Goldman skrifaði handritið að Óskarsverðlaunakvikmyndunum Butch Cassidy and the Sundance Kid og All the President´s Men. Þá á hann heiðurinn af handriti myndanna Marathon Man, Magic og The Princess Bride.
Hans er einnig minnst fyrir að áhugaverðar yfirlýsingar, eins og „Enginn veit neitt“ , þar sem hann var að tjá sig um kvikmyndaiðnaðinn í ævisögu sinni Adventures in the Screen Trade.
Goldman hóf ferilinn sem skáldsagnahöfundur, áður en hann hóf innreið sína í kvikmyndabransann, með handritinu að njósnamyndinni Masquerade frá árinu 1965.
Leikarinn Paul Newman lék í nokkrum af myndum Goldman, þar á meðal í The Moving Target og Butch Cassidy, en í þeirri síðarnefndu lék einnig Robert Redford.
Goldman lést eins og fyrr sagði á heimili sínu í New York í dag, og sagt er að heilsa hans hefði verið slæm um hríð. Jenny Goldman, dóttir hans, staðfesti andlát hans við The Washington Post, og sagði að hann hefði þjáðst af krabbameini og lungnabólgu.
Kvikmyndastjörnur eins og Ben Stiller, Michael Sheen og Mia Farrow hafa öll minnst Goldman. Stiller sagði til dæmis að Goldman hefði skapað margar af áhrifamestu kvikmyndum áttunda áratugarins og eftir það.
William Goldman, expert in the art of screenwriting, dies at 87 https://t.co/gZ56bhYVWM pic.twitter.com/91OB5nD1pH
— Hollywood Reporter (@THR) November 16, 2018
William Goldman Dies; Oscar Winning Writer Of ‘Butch Cassidy And The Sundance Kid’ Was 87 https://t.co/2JNbDlQEPI pic.twitter.com/SscJdpB9nU
— Deadline Hollywood (@DEADLINE) November 16, 2018
Legendary William Goldman, has died. He gave us ‘The Princess Bride’, ( book even better than the film) ‘Butch Cassidy-’ screenplay of „All the President’s Men’ and best book on show biz, ‘Adventures in the Screen Trade’. He was also a true friend. Thank you dear Bill pic.twitter.com/dcwfYPd3ue
— Mia Farrow (@MiaFarrow) November 16, 2018
William Goldman made my life, like so many millions of others, better and richer and more full of possibility because of what he wrote. What a gift. So sad today and so grateful. #WilliamGoldmanRIP pic.twitter.com/in3YOs8Pgm
— michael sheen (@michaelsheen) November 16, 2018