Thor búinn að gifta sig

Chris Hemsworth, aðalleikarinn í ofurhetjumyndinni Thor, sem væntanleg er í bíó í maí nk, er búinn að gifta sig. Hin heppna er spænska leikkonan Elsa Pataky.
Hjónin nýbökuðu byrjuðu að slá sér upp fyrr á þessu ári. Þetta er fyrsta hjónaband beggja.
Hemsworth er 27 ára gamall Ástrali og þreytti frumraun sína á hvíta tjaldinu í Star Trek á síðasta ári.
Pataky, sem er 34 ára gömul, lék m.a. í spennutryllinum Snakes on a Plane og leikur í Fast Five á næsta ári.

Stikk: