Will Smith gerir Bieber að leikara

Í viðtali við Access Hollywood lét smátitturinn og söngvarinn Justin Bieber þau orð falla að hann ynni nú með stórleikaranum Will Smith til að brjótast inn í heim kvikmyndanna. Smith hefur hingað til tekist að gera son sinn, Jaden Smith úr The Karate Kid, að þekktu nafni í Hollywood og vonast til að gera það sama fyrir dóttur sína Willow á næstunni.

„Við erum að skoða fullt af handritum núna,“ sagði Bieber. „Smith-fjölskyldan er búin að vera mjög góð við mig, þau styðja við bakið á mér og hafa verið ótrúleg. Þau er einstaklega gott fólk.“

– Bjarki Dagur