007.com birtir nýtt myndband

Heimasíða framleiðanda kvikmyndanna um snjallasta njósnara hennar hátignar, 007.com, fékk á dögunum andlitsliftingu og mun nú birtast reglulega efni þar inn á um gerð nýjustu myndarinnar, Skyfall, sem og 50 ára kvikmyndasögu seríunnar.

Michael G. Wilson, annar framleiðandi seríunnar birti stutt myndband í tilefni dagsins þar sem hann rifjaði þetta upp. Inn á milli má sjá (mjög skömm) brot frá gerð nýju myndarinnar, m.a. einhvern (er þetta Ralph Fiennes?) setja upp byssu. Myndbandið og fleira má sjá á www.007.com, eða hér fyrir neðan:

PS: Samkvæmt síðunni eru 300 dagar í myndina! Ég er ekki frá því að þetta sé ein af þeim sem ég er spenntastur fyrir á næsta ári. Hvað segið þið?