Chattahoochee (1989)
"Heroes happen in crazy places."
Emmet Foley er orðum skreyttur fyrrum hermaður sem barðist í Kóreustríðinu, en glímir við ýmsa erfiðleika, og þjáist af eftirköstum stríðsins og getuleysi.
Bönnuð innan 16 áraSöguþráður
Emmet Foley er orðum skreyttur fyrrum hermaður sem barðist í Kóreustríðinu, en glímir við ýmsa erfiðleika, og þjáist af eftirköstum stríðsins og getuleysi. Hann fær taugaáfall og fer og skýtur á allt sem hreyfist í hverfinu, og ætlar sér væntanlega að deyja svo í skotbardaga við lögregluna. Það tekst hinsvegar ekki, og hann skýtur sig sjálfur í brjóstið, en lifir af og er dæmdur í hámarksöryggisgæslu í geðspítala árið 1955 í Flórída. Þegar hann er að jafna sig af þessu þá fer hann að finna fyrir reiði yfir slæmri meðferð og misnotkun á öðrum sjúklingum á spítalanum, þar sem þarfir þeirra eru hundsaðar í umhverfi sem einkennist af vanrækslu og skít. Með hjálp annarra sjúklinga og hjálpsamrar systur, þá byrjar hann að berjast gegn bákninu, til að reyna að bæta aðstæður sjúklinganna.
Aðalleikarar
Höfundar og leikstjórar


Myndir
Plaköt
Framleiðendur














