Pottþétt skemmtun frá Renny Harlin. Davis og Jackson eru fín og sérstaklega er Jackson skemmtilegur og hasarinn af bestu gerð með mörgum flottum atriðum, t.d. hvernig vonda kallinum er komið...
The Long Kiss Goodnight (1996)
"Eight years ago she lost her memory. Now, a detective must help her remember the past before it buries them both. What's forgotten is not always gone."
Samantha Caine er húsmóðir í úthverfi.
Bönnuð innan 16 ára
Ofbeldi
BlótsyrðiSöguþráður
Samantha Caine er húsmóðir í úthverfi. Hún er fyrirmyndarmóðir 8 ára stúlku, Caitlin. Hún býr í Honesdale, PA, og vinnur sem kennari og býr til bestu Rice Krispie kökurnar í bænum. En þegar hún fær höfuðhögg byrjar hún að muna atvik úr fyrra lífi sínu sem stórhættulegur og háleynilegur útsendari í leyniþjónustunni. Nú eru gömlu félagar hennar á hælunum á henni og vilja drepa hana þannig að hún leitar hjálpar hjá ódýrum spæjara að nafni Mitch. Eftir því sem Samantha man meira og meira úr gamla lífi sínu verður hún hættulegri og úrræðabetri. Bæði Mitch og Charly halda nú áfram að gera það sem þarf að gera, drepa, berjast og skjóta.
Aðalleikarar
Höfundar og leikstjórar


Myndir
Bakgrunnsmyndir
Plaköt
Framleiðendur
























