Fierce Creatures
1997
Fannst ekki á veitum á Íslandi
Don't pet them.
93 MÍNEnska
53% Critics 62
/100 Stórfyrirtækið Octopus Inc, sem rekið er af hinum útsmogna og grimma auðjöfri Rod McCain, kauipr breskt skemmtifyrirtæki, og einnig dýragarðinn London Marwood Zoo, sem má muna sinn fífil fegurri. Til að auka aðsóknina í garðinn þá ræður Octopus nýjan framkvæmdastjóra, Rollo Lee, sem ákveður að losa sig við öll dýr, nema þau sem talist geta grimm. Þessi... Lesa meira
Stórfyrirtækið Octopus Inc, sem rekið er af hinum útsmogna og grimma auðjöfri Rod McCain, kauipr breskt skemmtifyrirtæki, og einnig dýragarðinn London Marwood Zoo, sem má muna sinn fífil fegurri. Til að auka aðsóknina í garðinn þá ræður Octopus nýjan framkvæmdastjóra, Rollo Lee, sem ákveður að losa sig við öll dýr, nema þau sem talist geta grimm. Þessi nýja stefna er áfall fyrir dýragarðsverðina, en í forsvari fyrir þá er hinn ávallt málglaði Adrian "Bugsy" Malone. Á endanum taka Vince, sonur Rod McCain, og hin efnilega Willa Weston, við stjórn garðsins, og endurvekja fyrri stefnu um að sýna bara grimm dýr. Vince finnur upp á allskonar ráðum til að laða að gesti og auka tekjur, með því að fá frægt fólk í garðinn, selja allskyns varning á uppsprengdu verði og að nota véldýr í stað alvöru dýra. En síðar kemur upp úr kafinu að Vince dregur sér fé úr sjóðum garðsins, og þegar faðir hans kemst að því, þá heitir hann því að selja Japönum garðinn til að byggja þar golfvöll. Á sama tíma er Willa orðin hugfangin af dýragarðinum og dýrunum, og , ásamt Rollo, sem hún er orðin hrifin af sömuleiðis, þá skipulegggur hún áætlun um að bjarga garðinum úr höndum McCain fjölskyldunnar.... minna