Náðu í appið
Honkytonk Man

Honkytonk Man (1982)

"The boy is on his way to becoming a man. The man is on his way to becoming a legend."

2 klst 2 mín1982

Myndin gerist í Oklohoma í Bandaríkjunum á dögum kreppunnar miklu á fyrri hluta 20.

Rotten Tomatoes93%
Metacritic50
Deila:
Honkytonk Man - Stikla

Söguþráður

Myndin gerist í Oklohoma í Bandaríkjunum á dögum kreppunnar miklu á fyrri hluta 20. aldarinnar. Sagan hefst á bóndabæ. Gríðarlegur sandstormur skekur bæinn og bíl er einnig ekið á hann, sem ekið er af Red, bróður konunnar á bænum. Hann er fremur þorparalegur kántrýtónlistarmaður sem nýbúið er að bjóða til að spila fyrir á Grand Ole Opry, en hér er um stærsta tækifæri lífs hans að ræða til að geta mögulega slegið í gegn sem atvinnutónlistarmaður. Staðan er þó fremur slæm fyrir Red. Hann er ömurlegur ökumaður, blankur og með berkla. Whit, 14 ára, sér nú tækifæri á að sleppa af bóndabænum og fremur óspennandi lífinu sem bíður hans þar, við að týna bómull. Hann býðst til að fara með Red frænda sínum sem bílstjóri og aðstoðarmaður. Þar með byrjar kostulegt ferðalag þeirra frænda, sem er bæði sprenghlægilegt og átakanlegt um leið.

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar

Gagnrýni notenda

Engar gagnrýnir ennþá. Vertu fyrstur til að skrifa gagnrýni!

Framleiðendur

Malpaso ProductionsUS
Warner Bros. PicturesUS

Verðlaun

🏆

Mitchell Torok var tilnefndur til Razzie verðlauna fyrir versta lag samið sérstaklega fyrir bíómynd: "No Sweeter Cheater Than You".