Náðu í appið
Taking Woodstock

Taking Woodstock (2009)

Motel Woodstock

""A Generation Began In His Backyard.""

2 klst2009

Taking Woodstock segir sanna sögu Elliots Tiber, sem árið 1969 var ungur innanhússarkitekt á uppleið í Greenwich Village í New York.

Rotten Tomatoes47%
Metacritic55
Deila:
Taking Woodstock - Stikla
12 áraBönnuð innan 12 ára
Ástæða:VímuefniVímuefniBlótsyrðiBlótsyrði

Söguþráður

Taking Woodstock segir sanna sögu Elliots Tiber, sem árið 1969 var ungur innanhússarkitekt á uppleið í Greenwich Village í New York. Foreldrar hans eiga niðurnítt mótel í bænum Bethel og leigir lítið hippaleikfélag hlöðu í eigu þeirra. Reksturinn á mótelinu gengur illa og sýnist Elliot að þau muni þurfa að loka því fyrr en síðar. Elliot fær þá hugmynd að halda litla tónlistarhátíð og hefur útvegað sér leyfi frá bæjaryfirvöldum í Bethel, sem hann þurfti aðeins að borga einn dollar fyrir. Þegar honum berast fréttir af því að skipuleggjendur Woodstock-tónlistarhátíðarinnar séu í vandræðum vegna andstöðu við upprunalega staðsetningu hátíðarinnar, býður hann þeim leyfið sitt og gistingu á mótelinu. Nágranni þeirra, Max Yasgur, leigir þeim landsvæði í sinni leigu, en þegar í ljós kemur að þetta verður eitthvað mun meira en lítil tónlistarhátíð flækjast málin fyrir alla aðila...

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar

Gagnrýni notenda

Engar gagnrýnir ennþá. Vertu fyrstur til að skrifa gagnrýni!

Framleiðendur

Focus FeaturesUS
Ang Lee ProductionsTW