Náðu í appið
Jaws 2

Jaws 2 (1978)

"Just when you thought it was safe to go back in the water..."

1 klst 56 mín1978

Litla sumarleyfiseyjan Amity reynir nú að lokka ferðamenn aftur á staðinn, eftir að hafa orðið fyrir miklu fjárhagslegu tjóni eftir skelfilegar hákarlaárásir fjórum árum fyrr.

Rotten Tomatoes57%
Metacritic51
Deila:
12 áraBönnuð innan 12 ára
Ástæða:OfbeldiOfbeldiHræðslaHræðsla

Söguþráður

Litla sumarleyfiseyjan Amity reynir nú að lokka ferðamenn aftur á staðinn, eftir að hafa orðið fyrir miklu fjárhagslegu tjóni eftir skelfilegar hákarlaárásir fjórum árum fyrr. Bæjarstjórinn Larry Vaughn er afar ánægður að fá á staðinn verktakann Len Peterson sem ætlar að byggja nýtt hótel á staðnumm. Tveir kafarar eru að rannsaka svæðið þar sem báturinn Orca sökk eftir að lögreglustjórinn Martin Brody drap þar risahákarl, fyrir fjórum árum. Þeir verða fyrir því óláni að hákarl birtist og rífur kafarana tvo í sig, en rétt áður nær annar kafaranna að smella af mynd af auga hákarlsins. Nokkru síðar er móðir að sigla á bát og dregur á eftir sér dóttur sína á táningsaldri, á sjóskíðum. Það skiptir engum togum að hákarlinn er mættur aftur á svæðið og étur dótturina, og móðirin slysast í kjölfarið til að sprengja bátinn í loft upp. Skömmu síðar finnst háhyrningur á ströndinni með risastór bitför á sér. Þegar Brody sér þetta þá veit hann að hér er aftur á ferð hvítur risahákarl, en Vaugh og Peterson vilja ekki viðurkenna að þarna sé hákarl á ferðinni ...

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar

Jeannot Szwarc
Jeannot SzwarcLeikstjóri
Howard Sackler
Howard SacklerHandritshöfundur

Framleiðendur

Universal PicturesUS
The Zanuck/Brown CompanyUS

Gagnrýni notenda (4)

Þó að þessi nái aldrei að toppa Jaws, þá er hún allavega betri en allar hinar myndirnar sem komu á eftir henni. Og verð ég að gefa henni plús fyrir það. En hún er samt leiðinleg, er ...

Þetta er með verri myndum sem ég hef séð. Hún nær engan veginn að fylgja fyrstu myndinni eftir. Jaws var mjög góð en Jaws 2 var algjör hörmung. Illa leikstýrð, óspennandi og illa leiki...

Fín mynd. Ekki eins góð og sú fyrri en ágæt afþreying. Ef þér fannst gaman af þeirri fyrri þá finnst þér þessi einnig skemmtileg.

★☆☆☆☆

Myndin er illa leikin óspennandi léleg tónlist. Fyrri myndin var góð en þessi var leiðinleg.