Þetta er bara ein besta mynd sem ég hef séð....hef samt ekki séð upprunalegu, Nikita eftir Luc Besson, en ég mæli með þessari!!
Point of No Return (1993)
The Assassin
"The Government gave her a choice. Death. Or life as an assassin. Now, there's no turning back."
Maggie Hayward er forhert glæpakvendi, sem er vön því að beita skefjalausu ofbeldi, jafnvel þegar hún er í haldi lögreglu.
Bönnuð innan 16 ára
Ofbeldi
BlótsyrðiSöguþráður
Maggie Hayward er forhert glæpakvendi, sem er vön því að beita skefjalausu ofbeldi, jafnvel þegar hún er í haldi lögreglu. Nú á að taka hana af lífi fyrir að myrða lögreglumann. Það er þó ekki öll nótt úti enn því erindreki frá háleynilegri opinberri bandarískri stofnun, Bob, setur dauða hennar á svið, svo hún geti orðið leigumorðingi og hægt verði að kúga hana til hlýðni, en það er gert að algeru skilyrði að hún muni starfa til æviloka fyrir stjórnvöld sem leigumorðingi. Sem yfirvarp, þá fær hún ný persónueinkenni sem sölukonan Claudia Anne Doran. Hún fær einnig dásamlegan eiginmann, J.P. , sem er víðsýnn og alúðlegur ljósmyndari. Þau verða ástfangin, en það flækir aðeins málin þegar kemur að leigumorðunum. Góð áhrif hans þróa með henni samvisku þannig að hún fer að kunna að meta ást meira en vinnuna, sem er þvert á við það sem stofnun Bobs hafði áætlað.
Aðalleikarar
Höfundar og leikstjórar
Myndir
Bakgrunnsmyndir
Plaköt
Framleiðendur


Gagnrýni notenda (4)
Ameríkanar ættu að hætta að endurgera góðar myndir á öðrum tungumálum, þeir ættu bara að nenna að lesa textann á upprunalegu myndinni. Þessi er ekkert miðað við frumgerð meistara ...
Hoolywood endurgerð á La Femme Nikita. Góð mynd þannig lagað en stenst engann veginn samanburð við frumgerð Luc Bessons.



























