Náðu í appið
Justin Bieber: Never Say Never

Justin Bieber: Never Say Never (2011)

"Find Out What's Possible If You Never Give Up."

1 klst 45 mín2011

Heimildarmyndin Justin Bieber: Never Say Never er þrívíddarmynd sem fylgir hinum sextán ára Justin Bieber, sem í dag er ein allra stærsta poppstjarna veraldar, bæði...

Rotten Tomatoes66%
Metacritic52
Deila:
Öllum leyfð Öllum leyfð

Hvar má horfa

Söguþráður

Heimildarmyndin Justin Bieber: Never Say Never er þrívíddarmynd sem fylgir hinum sextán ára Justin Bieber, sem í dag er ein allra stærsta poppstjarna veraldar, bæði í sínu persónulega lífi og á tónleikaferðalagi sínu sem hann fór í um öll Bandaríkin árið 2010. Hér er hann að undirbúa tónleikaröð sem á að ná yfir þver og endilöng Bandaríkin, en þessir tónleikar eru engin smásmíði, eins og sést á þeim upptökum sem sýndar eru í myndinni. Aðdáendahópurinn er heldur ekki beint lítill og er hann umsetinn misbrjáluðum aðdáendum nánast hvert sem hann fer, sem gerir einkalífið all sérstakt. Fyrir utan plötuútgáfu og tónleika var Justin einnig fenginn til að syngja þemalag kvikmyndarinnar The Karate Kid og sjáum við hvernig það gekk fyrir sig, en hann og aðalleikari þeirrar myndar, Jaden Smith, eru góðir vinir. Inn í þessar upptökur er svo brugðið upp gömlum upptökum af Bieber þegar hann var enn yngri, sem þýðir að við kynnumst lífi hans allrækilega í Never Say Never.

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar

Framleiðendur

Insurge PicturesUS
Magical ElvesUS
Scooter Braun FilmsUS
Paramount PicturesUS
L.A. Reid Media
AEG LiveUS