Náðu í appið
Grudge Match

Grudge Match (2013)

"A rivalry 30 years in the making."

1 klst 53 mín2013

Þeir Henry og Billy mættust tvisvar í hringnum fyrir 30 árum og unnu hvor sinn bardagann.

Rotten Tomatoes31%
Metacritic35
Deila:
12 áraBönnuð innan 12 ára
Ástæða:OfbeldiOfbeldiBlótsyrðiBlótsyrði

Söguþráður

Þeir Henry og Billy mættust tvisvar í hringnum fyrir 30 árum og unnu hvor sinn bardagann. Til stóð að þeir myndu berjast í þriðja sinn en af þeim bardaga varð aldrei af ýmsum ástæðum, aðallega samt þeim að þeir þoldu ekki hvor annan. Dag einn eru þeir kappar fengnir til að búa til eftirmyndir af sjálfum sér fyrir tölvuleik. Við það tækifæri komast þeir ekki hjá því að hittast í stúdíóinu þar sem upptökurnar fara fram og eru fljótlega komnir í hár saman, sem endar með slagsmálum. Í framhaldi af því kviknar sú hugmynd að láta loksins verða af þriðja bardaganum og þótt hvorugum lítist á það í byrjun ákveða þeir Henry og Billy að þekkjast boðið þar sem talsverðir peningar eru í spilinu. Spurningin er hvort hægt sé að koma þessum gamlingjum í sýningarhæft form í tíma ...

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar

Framleiðendur

Gerber PicturesUS
Warner Bros. PicturesUS
Callahan FilmworksUS