Dumb and Dumber To (2014)
"GÁFUR ERU BARA AUKAATRIÐI"
Erkifíflin Harry Dunne (Daniels) og Lloyd Christmas (Carrey) mæta aftur til leiks í nýju framhaldi af myndinni Dumb and Dumber frá árinu 1994.
Bönnuð innan 6 áraSöguþráður
Erkifíflin Harry Dunne (Daniels) og Lloyd Christmas (Carrey) mæta aftur til leiks í nýju framhaldi af myndinni Dumb and Dumber frá árinu 1994. Tuttugu ár eru liðin frá síðasta ævintýri þeirra félaga og í þetta sinn leggja þeir upp í ferðalag til að finna óskilgetin börn sín í von um að fá nýtt nýra fyrir Harry! Tuttugu árum eftir ævintýrin í fyrri myndinni leggja félagarnir Harry og Lloyd aftur í hann, í þetta sinn til að hafa uppi á dóttur Harrys og athuga hvort hún geti gefið honum annað nýrað úr sér. Lloyd hefur verið á hæli síðan síðast enda yfirbugaður af ástarsorg eftir að hafa mistekist að vinna ástir sinnar heittelskuðu Mary Swanson. Það kemur hins vegar í ljós í upphafi myndarinnar að Lloyd var bara að plata bæði Harry og alla á hælinu. Hann er nefnilega ekkert geðveikur og er í raun kominn yfir Mary fyrir löngu. Glaðir í bragði halda því félagarnir heim í gömlu íbúðina sína og komast þá að því að Harry á dóttur sem hann vissi ekkert af. Og þar sem hann þarf að fá nýtt nýra halda þeir félagarnir af stað út í heim í leit að henni ...
Aðalleikarar
Höfundar og leikstjórar



Aðrar myndir

Gagnrýni notenda
Skráðu þig inn til að skrifa gagnrýni
InnskráEngar gagnrýnir ennþá. Vertu fyrstur til að skrifa gagnrýni!
Framleiðendur






































