Famke Janssen hætt í MIB 2

Famke Janssen ( X-Men , Made ) er hætt í Men In Black 2. Hún átti að leika hina illu Serleena í myndinni, en vegna veikinda í fjölskyldunni yfirgaf hún settið eftir aðeins einn tökudag. Í hennar stað kemur hin óhemjulélega leikkona Lara Flynn Boyle ( Happiness , Threesome ). Þetta eru vondar fréttir og boða ekki gott fyrir framhaldið af einni vinsælustu kvikmynd síðari ára.