Barbenheimer sló í gegn og helgin sú stærsta í sögunni

Gamanmyndin Barbie, með Margot Robbie og Ryan Gosling i aðalhlutverkunum, fór beint á topp íslenska aðsóknarlistans um helgina. Tekjur myndarinnar námu 21,5 milljónum króna en Oppenheimer, hin frumsýningarmynd helgarinnar, var með rúmar fjórtán milljónir.

Toppmynd síðustu viku, Mission: Impossible Dead Reckoning – Part 1 datt niður í þriðja sæti listans með 3,5 milljónir í tekjur.

Miklar væntingar höfðu verið gerðar til bæði Barbie og Oppenheimer og má segja að þær hafi staðið undir þeim og meira til.

Fram kem­ur í frétta­til­kynn­ingu frá FRISK, Fé­lagi rétt­hafa í sjón­varps- og kvik­myndaiðnaði, að um stærstu opn­un­ar­helgi í ís­lensk­um kvik­mynda­hús­um frá upp­hafi hafi verið að ræða.

Myndirnar slógu líka í gegn í Bandaríkjunum þar sem Barbie fór á toppinn með 150 milljónir dala í tekjur en Oppenheimer 80 milljónir.

Sjáðu íslenska bíóaðsóknarlistann í heild sinni hér fyrir neðan: